Ég tel þetta vera það besta fyrir minn feril
Eyjólfur Garðarsson

Sigurjón Guðmundsson gekk á dögunum í raðir Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni. Honum er ætlað að fylla skarð Phil Döhler, fyrrverandi markvarðar FH, sem yfirgaf Sandefjord í sumar og gekk í raðir sænska úrvalsdeildarfélagsins Amo.

Sigurjón varð norskur meistari með Kolstad á síðustu leiktíð eftir að hafa fengið stærra hlutverk með liðinu. Hann fékk hins vegar ekki áframhaldandi samning hjá félaginu og heldur því áfram í Noregi þar sem hann hefur nú samið við Sandefjord.

„Ég fékk að vita það eftir áramót að Kolstad ætluðu ekki að framlengja við mig vegna nýrrar stefnu hjá félaginu og þá hófst í raun leit að nýju liði. Sandefjord hafði lengi áhuga á mér en það ferli fór ekki almennilega í gang fyrr en fyrir stuttu síðan,“ segir Sigurjón í samtali við Handkastið en Sandefjord endaði í 6.sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.

Hann lítur til baka á síðustu tvö ár hjá Kolstad sem mikinn tilfinningarússíbana.

„Ég myndi segja algjöran tilfinningarússíbana. Maður upplifði allar mögulegar tilfinningar, bæði frábærar og hörmulegar.“

Sigurjón kom upphaflega til Kolstad sem leikmaður varaliðsins en vann sig smám saman inn í aðalliðið. Hann fékk svo tækifæri með liðinu og varð norskur meistari með liðinu bæði tímabilin en þó í töluvert stærra hlutverki á þeirri síðustu.

„Þetta var í raun og veru ótrúlegt og ólýsanlegt. Maður er einhvern veginn ennþá að átta sig á þessu bara.“

Það var þó ekki alltaf auðvelt að bíða eftir tækifærinu. „Það var ekki alltaf einfalt en maður hélt alltaf í vonina um að tækifærið myndi koma.“

Þegar kallið kom loks í aðalliðið og hann fékk sín fyrstu alvöru tækifæri var það stór stund fyrir Sigurjón. „Já, maður man vel eftir því. Það var stórt móment fyrir mig og mjög gaman.“

„Lærdómurinn sem maður tók frá síðasta tímabili er ómetanlegur. Ég fékk að læra mjög mikið af Palicka fyrir áramót og svo kom reynslan af því að spila í svona úrslitakeppni, standa uppi í stóru hlutverki og vinna minn fyrsta titil í meistaraflokki. Það er eitthvað sem maður er stoltur af og mun aldrei gleyma.“

Sigurjón var lengi orðaður við það að snúa aftur heim og spila í íslensku deildinni en hélt öllum dyrum opnum á meðan hann leitaði að nýju tækifæri.

„Maður hélt öllum dyrum opnum lengi en svo þegar þessi möguleiki með Sandefjord varð raunverulegri þá var það ekki spurning í mínum bókum.“

Ákvörðunin um að halda áfram í Noregi var því að lokum nokkuð skýr. „Ég sé fyrir mér að geta þróað minn leik betur hér í Noregi en á Íslandi og að stökkpallurinn minn fyrir næsta skref á ferlinum verði betri. Ég tel þetta vera það besta fyrir minn feril.“

Sandefjord hafnaði í 6. sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð eins og fyrr segir eftir að hafa komið upp úr næstefstu deild og hefur styrkt lið sitt fyrir komandi tímabil. Markmið Sigurjóns og liðsfélaga hans eru því skýr.

„Ég fer inn með ágætis væntingar þannig séð. Þeir enduðu í sjötta sæti í fyrra sem nýliðar og það var flottur árangur. Þeir eru síðan búnir að styrkja liðið síðan þá þannig að markmiðið er að vera áfram í topp sex og gera síðan betur í úrslitakeppninni.“

Sigurjón segir sig sjálfan vera allt annan leikmann í dag en þegar hann kom fyrst til Kolstad.

„Ég tel mig hafa bætt minn leik á öllum sviðum og öðlast dýrmæta reynslu sem ég tek með mér áfram.“

Á þessum tveimur árum hefur hann einnig lært mikilvægi þess að halda í trúna á sjálfan sig og vera þolinmóður. „Að hafa óbilandi trú á sjálfum sér og að mikil þolinmæði skilar sér. Ég vil bæta mig á öllum sviðum en leggja meiri áherslu á sendingar hjá mér fram á völlinn og að koma boltanum hratt í gang.“

Hlutverk hans hjá Sandefjord verður stórt og það var einmitt eitt af því sem heillaði hann við félagið. „Hlutverkið mitt hjá Sandefjord á að vera stórt og það var það sem heillaði mig líka mikið. Ég á að fá tækifæri og traustið til að vera aðalmarkmaður hjá þeim og taka mikið pláss þannig að ég er mjög spenntur fyrir komandi tímabili," sagði Sigurjón að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top