Jason Stefánsson er á góðri leið með að snúa aftur á handboltavöllinn eftir langt og strangt meiðslahlé. Jason verður að öllum líkindum klár í slaginn þegar Olís-deild karla hefst í byrjun september, eftir að hafa misst af allri síðustu leiktíð vegna krossbandsslits. Það staðfesti Sigurður Bragason, aðstoðarþjálfari ÍBV, í samtali við Handkastið. Jason varð fyrir því óláni síðasta sumar að slíta krossband á æfingu með U19 landsliði Íslands, 2006 árgangi. Meiðslin þýddu að hann missti af heimsmeistaramótinu með landsliðinu og lék ekki einn einasta leik með Eyjamönnum á síðustu leiktíð. Nú bendir hins vegar allt til þess að endurkoman sé skammt undan og hefur Jason þegar hafið fulla þátttöku á æfingum liðsins. „Hann er bara byrjaður á fullu, lítur bara fantavel út. Hann er búinn að nota tímann vel í efri búk og það sést á honum. Hann verður orðinn 100% í byrjun móts ef ekkert óvænt kemur upp,“ sagði Sigurður Bragason í samtali við Handkastið. Endurkoma Jasons eru afar jákvæð tíðindi fyrir ÍBV sem undirbýr sig nú af krafti fyrir komandi tímabil í Olís-deildinni. Liðið fer til Hollands um miðjan ágúst og leikur þar þrjá vináttuleiki í undirbúningi sínum fyrir tímabilið auk þess sem ÍBV tekur þátt í Ragnarsmótinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.