Viktor Gísli framlengir við Barca
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson hefur framlengt samningi sínum við spænska stórliðið Barcelona til sumarsins 2029. Félagið tilkynnti þetta á samfélagsmiðla sínu sinni fyrr í dag.

Viktor gekk til liðs við Barcelona fyrir tímabilið 2025/26 eftir eitt tímabil með Wisła Płock í Póllandi og skrifaði þá undir samning til ársins 2027. Með nýja samningnum bætast tvö ár við dvöl hans hjá katalónska stórveldinu en Viktor var í janúar orðaður við þýska félagið Gummersbach.

Í tilkynningu frá Barcelona kemur fram að Viktor hafi á skömmum tíma fest sig í sessi sem einn besti markvörður Evrópu. Frammistaða hans á síðasta tímabili, bæði með Barcelona og íslenska landsliðinu, hefur vakið verðskuldaða athygli og félagið hefur því ákveðið að binda hann til lengri tíma.

Viktor Gísli fær nýjan markmann með sér í markmannsteymi Barcelona en Daninn, Emil Nielsen gekk í raðir Veszprém í Ungverjalandi á meðan Sergey Hernandez  gekk í raðir Barca frá Magdeburg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top