Samkvæmt heimildum Handkastsins hafði ÍBV samband við Birki Benediktsson á dögunum og reyndi að fá hann til félagsins eftir að ljóst varð að Elís Þór Aðalsteinsson verður frá keppni um óákveðinn tíma vegna krossbandsslits sem hann varð fyrir með U20 ára landsliði Íslands á Evrópumótinu í júlí. Birkir er samningslaus eftir að samningur hans við FH rann út fyrr í sumar en hann gerði eins árs samning við Fimleikafélagið fyrir ári síðan. Hann gekk til liðs við Hafnarfjarðarliðið síðasta sumar á eins árs samningi eftir eins árs dvöl hjá Wakunaga í Japan. Áður en hann hélt til Japans hafði Birkir leikið allan sinn feril með uppeldisfélagi sínu Aftureldingu, þar sem hann festi sig í sessi sem ein öflugasta skytta landsins. Á síðustu leiktíð skoraði Birkir 84 mörk fyrir FH í Olís-deildinni og úrslitakeppninni. FH endaði í öðru sæti deildarinnar og komst alla leið í úrslitaeinvígið þar sem liðið laut í lægra haldi fyrir Val í oddaleik. Handkastið hafði áður greint frá því að Birkir hafi verið í viðræðum við uppeldisfélag sitt, Aftureldingu en þær viðræður virðast vera að dragast á langinn og mögulega verður ekkert úr heimkomu Birkis í Mosfellsbæinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.