Markmiðinu hvergi nærri lokið
Lucija Begenisic

„Það er frábær tilfinning að vera komnir í átta liða úrslit Evrópumótsins. Okkar markmiði er þó hvergi nærri lokið,“ sagði Andri Sigfússon, einn þriggja þjálfara U18 ára karlalandsliðs Íslands, eftir sannfærandi sigur á Portúgal í lokaleik íslenska liðsins í milliriðli Evrópumótsins í gær.

Með sigrinum tryggði Ísland sér sæti í átta liða úrslitum þar sem liðið mætir Þýskalandi á morgun, fimmtudag, klukkan 15:00. Andri sagði íslenska liðið hafa verið afar vel undirbúið fyrir leikinn gegn Portúgal.

„Portúgalar eru gríðarlega hraðir og leika skemmtilegan handbolta. Við vorum vel undirbúnir og náðum að taka vel á móti klippingunum í þeirra sóknarleik. Við unnum marga góða bolta og refsuðum með hraðaupphlaupum eða mörkum úr seinni bylgju. Simmi var sömuleiðis frábær í markinu í dag.“

Líkt og í fyrri leikjum mótsins lagði þjálfarateymið áherslu á að nýta breiddina í leikmannahópnum.

„Líkt og í undanförnum leikjum náðum við að nýta allan leikmannahópinn okkar og dreifa spilmínútum vel. Framundan er leikur þar sem allir þurfa að vera klárir í slaginn.“

Þekkja Þjóðverjana vel

Ísland og Þýskaland hafa mæst þrívegis í þessum aldursflokki og því þekkja liðin hvort annað vel. Þjóðverjar höfðu betur á Nordic Cup í Færeyjum, Ísland vann úrslitaleik Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar og Þjóðverjar fögnuðu svo sigri í úrslitaleik Sparkassen Cup um síðustu áramót.

„Við höfum mætt Þjóðverjum þrisvar sinnum á rúmlega ári. Þeir unnu okkur á Nordic Cup í Færeyjum, við unnum þá í úrslitaleik Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar og loks unnu þeir okkur í úrslitaleik Sparkassen Cup milli jóla og nýárs. Þeir eru ríkjandi heimsmeistarar í þessum árgangi þannig að um virkilega krefjandi andstæðing er að ræða.“

Þrátt fyrir að Þjóðverjar hafi aðeins endað í þriðja sæti síns milliriðils segir Andri engan mega vanmeta styrkleika þeirra.

„Þó að þeir hafi endað í þriðja sæti síns milliriðils eru þeir ógnarsterkir. Við vissum að andstæðingar okkar í átta liða úrslitum yrðu líklega Þjóðverjar eða Frakkar þannig að við höfum nýtt daginn í að undirbúa okkur. Við verðum með fund og æfingu seinnipartinn í dag til að kortleggja Þjóðverjana.“

Góð staða á hópnum

Tíðindin úr herbúðum Íslands jákvæð. Brynjar Narfi Arndal fékk sprungu á vör í leiknum gegn Portúgal en meiðslin eru ekki talin alvarleg. Markvörðurinn, Anton Máni var hvíldur vegna smávægilegra meiðsla en hann verður tilbúinn í leikinn á morgun. Þá staðfesti Andri einnig að fyrirliðinn, Patrekur Smári Arnarsson verði ekki í leikbanni eftir rauða spjaldið sem hann fékk í leiknum í gær.

,,Hópurinn er þess vegna á flottum stað.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top