U18 Evrópumótið í handbolta í Serbíu hefur verið frábær vettvangur fyrir efnilegustu leikmenn Evrópu til að láta ljós sitt skína. Nokkrir leikmenn hafa þegar vakið sérstaka athygli með frammistöðu sinni og eru sagðir á radarnum hjá stærstu félögum álfunnar. Íslenska landsliðið verður í eldlínunni í dag klukkan 15:00 þegar liðið mætir Þýskalandi í 8-liða úrslitum mótsins. Íslenska liðið hefur verið óstöðvandi á mótinu hingað til og unnið alla fimm leiki sína á mótinu sannfærandi. Hér eru fjórir leikmenn sem hafa skarað fram úr það sem af er móti að mati Handball-World. Færeyski bakvörðurinn Boas Ellefsen á Skipagøtu, yngri bróðir Eliasar Ellefsen á Skipagøtu leikmanns Kiel, hefur verið einn skærasti leikmaður mótsins. Eftir riðlakeppnina var hann markahæstur með 32 mörk og hefur haldið áfram að bæta við markareikning sinn í milliriðlinum. Í 35-35 jafntefli gegn Póllandi skoraði hann tólf mörk og var valinn besti leikmaður vallarins í annað sinn á mótinu. Boas leikur enn með félagsliði í Færeyjum, en frammistaða hans bendir til þess að það gæti breyst á næstunni. Þrátt fyrir að Austurríki hafi fallið úr leik hefur markvörðurinn Sergej Novakovic verið einn af eftirtektarverðustu leikmönnum mótsins. Hinn 203 sentímetra hái markvörður var valinn maður leiksins bæði í opnunarleiknum gegn Spáni og í fyrsta leik milliriðilsins. Novakovic vakti einnig mikla athygli á U20 Evrópumótinu fyrr í sumar, þar sem hann varði 74 skot og endaði með 35,4 prósenta markvörslu. Samkvæmt erlendum miðlum er hann nú sagður á leið til Evrópumeistara Barcelona. Slóvakinn Jakub Valent hefur einnig átt stórmót. Vinstri skyttan hefur farið fram úr Boas á markalistanum og er nú efstur með 45 mörk. Þar af skoraði hann 13 mörk í sigri á Finnlandi. Valent er samningsbundinn Tatran Presov og fékk þegar að spreyta sig í Evrópudeildinni á síðasta tímabili. Frammistaða hans á Evrópumótinu hefur án efa vakið athygli félaga víðs vegar um Evrópu. Danski leikstjórnandinn Emil Kvistgaard Bak var talinn einn efnilegasti leikmaður síns árgangs áður en mótið hófst og hefur staðið undir þeim væntingum. Eftir fjóra leiki hafði hann skorað 36 mörk og var meðal markahæstu leikmanna mótsins. Kvistgaard hefur þegar fengið tækifæri með GOG í Meistaradeild Evrópu og lét einnig mikið að sér kveða í EHF Youth Trophy fyrr á árinu, þar sem hann skoraði alls 49 mörk, þar af 23 í úrslitahelginni í Köln. Þó mótið sé langt frá því að vera búið hafa þessir fjórir leikmenn þegar sýnt að þeir gætu orðið meðal stærstu nafna evrópsks handbolta á næstu árum.Boas Ellefsen á Skipagøtu
Sergej Novakovic
Jakub Valent
Emil Kvistgaard Bak

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.