Íslenska U18 ára karlalandsliðið stendur frammi fyrir stærsta leik sínum hingað til þegar liðið mætir Þýskalandi í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í Serbíu í dag. Leikurinn hefst klukkan 15:00 en íslenska liðið hefur unnið alla fimm leiki sína á mótinu til þessa. Það sem gerir viðureignina enn áhugaverðari er að núverandi leikmannahópur Íslands hefur aðeins tapað tveimur landsleikjum frá því hann kom fyrst saman fyrir tveimur árum. Hópurinn hefur nú leikið alls 22 landsleiki saman, á U16-, U17- og U18 og unnið 20 þeirra. Bæði töpin hafa komið gegn Þjóðverjum. Fyrra tapið var með þriggja marka mun 25-28 á æfingamóti í Færeyjum síðasta sumar en það síðara með þriggja marka mun 28-31 í úrslitaleik í æfingamóti sem fram fór í Þýsklandi milli jól og ný árs. Ísland hefur hins vegar lagt að velli öflugar þjóðir á borð við Spán, Króatíu, Ungverjaland, Portúgal, Sviss, Slóveníu, Austurríki, Holland, Norður-Makedóníu og Færeyjar á þessu tímabili. Þjóðverjar tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitunum naumlega og héngu á bláþræði með að komast áfram úr milliriðlinum. Takist Íslandi að vinna leikinn í dag tryggir liðið sér sæti í undanúrslitum Evrópumótsins þar sem það mætir sigurvegaranum úr viðureign Frakklands og Spánar. Þær þjóðir mætast einnig á sama tíma í dag, klukkan 15:00. Leikir íslenska 2008 landsliðsins í gegnum tíðina: Ísland - Færeyjar 31-19
Ísland - Færeyjar 32-25
Ísland – Færeyjar 29–28
Ísland – Sviss 34–30
Ísland – Þýskaland 25–28
Ísland – Spánn 31–19
Ísland – Króatía 35–21
Ísland – Norður-Makedónía 36–27
Ísland – Ungverjaland 40–32
Ísland – Þýskaland 28–25
Ísland – Slóvenía 29–24
Ísland – Austurríki 32–20
Ísland – Holland 31–18
Ísland – Portúgal 31–28
Ísland – Þýskaland 28–31
Ísland – Færeyjar 32–28
Ísland – Færeyjar 40–28
Ísland – Sviss 39–25
Ísland – Ungverjaland 41–28
Ísland – Sviss 33–28
Ísland – Króatía 37–29
Ísland – Portúgal 41–29

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.