Þetta eru Evrópumeistararnir frá 2003 – Fáum við annað EM gull 23 árum síðar?
Sævar Jónsson

Íslenska U18 ára landslið karla hefur vakið verðskuldaða athygli á Evrópumótinu í Serbíu þar sem liðið hefur tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum eftir glæsilegt gengi í fyrstu leikjum mótsins. Ísland mætir Þýskalandi í 8-liða úrslitum mótsins í dag klukkan 15:00.

Með árangrinum hafa margir rifjað upp sumarið 2003 þegar Ísland náði einum sögulegasta árangri sínum í yngri landsliðum og varð Evrópumeistari í sama aldursflokki.

Heimir Ríkarðsson stýrði því liði sem lagði Þýskaland að velli í úrslitaleiknum og tryggði Íslandi enn þann dag í dag eina Evrópumeistaratitil sinn.

Leikmenn Íslands sem urðu Evrópumeistarar árið 2003 voru:

  • Ingvar Árnarson
  • Andri Stefan
  • Árni Þór Sigtryggsson
  • Arnór Atlason
  • Hrafn Ingvarsson
  • Kári Kristján Kristjánsson
  • Einar Ingi Hrafnsson
  • Jóhann Gunnar Einarsson
  • Árni Björn Þórarinsson
  • Ragnar Hjaltested
  • Pálmar Pétursson
  • Ásgeir Örn Hallgrímsson
  • Björgvin Páll Gústavsson
  • Þórður Þórðarson
  • Sigfús Páll Sigfússon
  • Ívar Grétarsson

Sérstök tenging er á milli liðanna tveggja því Ásgeir Örn Hallgrímsson, sem var einn af lykilmönnum gullliðsins árið 2003, er í dag einn af þremur þjálfurum U18 ára landsliðsins. Hann fær því nú tækifæri til að leiða nýja kynslóð íslenskra handknattleiksmanna í átt að sama afreki og hann náði sjálfur fyrir 23 árum.

Núverandi landslið hefur farið afar sannfærandi í gegnum mótið og er komið meðal átta bestu liða Evrópu. Fram undan eru úrslitaleikir þar sem íslenska liðið hefur alla burði til að berjast um verðlaun.

Spurningin er því hvort strákarnir í Serbíu geti fetað í fótspor gullkynslóðarinnar frá 2003 og fært Íslandi annan Evrópumeistaratitil í U18 ára flokki. Ef svo fer verður Ásgeir Örn jafnframt fyrsti Íslendingurinn til að verða Evrópumeistari í þessum aldursflokki bæði sem leikmaður og þjálfari.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top