Króati í Garðabæinn
Stjarnan

Kvennalið Stjörnunnar hefur bætt við sig leikmanni fyrir átökin í Olís-deild kvenna en félagið kynnti í dag að Króatinn, Dora Pajic hafi samið við félagið.

Er Dora þriðji erlendi leikmaðurinn sem gengur í raðir Stjörnunnar í sumar en áður hafði Trude Håkonsen gengið í raðir félagsins frá KA/Þór og Sara Winde frá Skövde.

Dora sem er fædd árið 2001 er rétthent skytta og leikstjórnandi sem lék á síðustu leiktíð með Osijek í króatísku úrvalsdeildinni.

,,Við bjóðum Doru hjartanlega velkomna til félagsins og hlökkum til að sjá hana í bláa búningnum," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. Dora hefur einnig leikið með ZRK Koka í heimalandinu og þá lék hún með U19 ára landsliði Króatíu á EM árið 2019.

Stjarnan endaði í 7.sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð en tryggði sér sæti í Olís-deildinni eftir sigur á Gróttu í oddaleik í umspili um laust sæti í deildinni. Í kjölfarið var liðum í Olís-deildinni fjölgað í 10 lið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top