Óvissa um þátttöku Loga gegn Frakklandi
HSÍ

Freyr Aronsson sleppur við leikbann og getur leikið með íslenska U18 ára landsliðinu gegn Frakklandi í dag klukkan 15:00. Bæði Ísland og Frakkland töpuðu í 8-liða úrslitum og leika þjóðirnar því um 5.-8.sætið á mótinu.

Enn er óvíst hinsvegar hvort Logi Finnsson geti leikið í dag en bæði Freyr og Logi fengu að líta rauða spjaldið í leiknum gegn Þjóðverjum í gær. HSÍ þurfti að senda frá sér greinargerð vegna máls Loga en þetta staðfesti Andri Sigfússon þjálfari U18 ára landsliðsins í samtali við Handkastið í morgun.

Ísland tapaði gegn Þýskalandi í gær með tveimur mörkum 33-31 en liðið var undir nær allan leikinn. Frakkland tapaði á sama tíma gegn Spánverjum 29-27 en það sama var upp á teningnum þar, þar sem Spánverjar leiddu nær allan leikinn.

Króatía og Ungverjaland mætast í hinum leiknum um 5.-8.sætið en Ísland hefur mætt báðum þjóðunum á mótinu hingað til og unnu leikina báða nokkuð sannfærandi.

Í undanúrslitum mætast Þýskaland og Spánn og Danmörk og Slóvenía hinsvegar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top