Enn ríkir óvissa um framtíð tveggja leikmanna Stjörnunnar fyrir komandi tímabil í Olís-deild karla. Samkvæmt heimildum Handkastsins gætu bæði Sveinn Andri Sveinsson og fyrirliðinn Starri Friðriksson verið á förum frá Garðabæjarliðinu. Sveinn Andri er samkvæmt heimildum Handkastsins á leið erlendis í nám. Þá er framtíð Starra einnig í óvissu en hann glímir enn við erfið bakmeiðsli sem settu verulegan svip á lok síðasta keppnistímabils hjá honum. Heimildir Handkastsins herma að ekki sé útilokað að hann ákveði að leggja skóna á hilluna. Sveinn Andri gekk til liðs við Stjörnuna sumarið 2024 en dvöl hans í Garðabænum hefur einkennst af miklum meiðslavandræðum. Hann varð fyrir alvarlegum meiðslum í æfingaleik á undirbúningstímabilinu fyrir síðustu leiktíð, þurfti í aðgerð og kom því lítið við sögu. Hann náði aðeins að leika þrjá leiki á tímabilinu og skoraði í þeim tvö mörk. Starri er hins vegar einn af reynslumestu leikmönnum Stjörnunnar og uppalinn hjá félaginu. Hann hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil í Garðabænum og bar fyrirliðabandið á síðustu leiktíð. Þrátt fyrir að glíma við meiðsli undir lok tímabilsins skoraði hann 41 mark fyrir liðið á síðustu leiktíð. Töluverðar breytingar verða á leikmannahópi Stjörnunnar frá síðustu leiktíð er liðið endaði í 11.sæti deildarinnar. Þjálfarabreytingar hafa orðið á liðinu og þá hafa lykilmenn horfið á braut. Hitað var upp fyrir Olís-deildir karla og kvenna í nýjasta þætti Handkastsins í gærkvöldi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.