Strákarnir eru staðráðnir í að ljúka mótinu með sigri
Lucija Begenisic

Andri Sigfússon, þjálfari íslenska U18 ára landsliðsins, var ánægður með sigurinn á Frökkum í dag á Evrópumótinu, en Ísland hafði betur í spennandi leik og tryggði sér þar með sæti í leiknum um fimmta sætið.

Andri var sérstaklega ánægður með fyrri hálfleik íslenska liðsins en Ísland leiddi í hálfleik með fjórum mörkum 20-16. Frakkarnir hófu hinsvegar seinni hálfleikinn af krafti og skoruðu fimm af fyrstu sex mörkum hálfleiksins og voru búnir að jafna í stöðunni 21-21.

„Leikurinn var vel leikinn að okkar hálfu í fyrri hálfleik. Við vorum að vinna bolta varnarlega og skora úr hraðaupphlaupum og seinni bylgju. Við vorum klaufar að vera ekki með meira forskot í hálfleik. Við urðum værukærir í síðari hálfleik og áttum alltaf í meiri og meiri vandræðum að skora sóknarlega. Við þurftum að hafa mikið fyrir hverju færi og á sama tíma fóru Frakkarnir í 7 á 6.“

Íslenska liðið náði þó að snúa leiknum aftur sér í hag eftir að Andri breytti varnarskipulaginu.

„Við leystum það ekki nógu vel, ekki fyrr en við fórum 5-1 varnarlega. Þá unnum við nokkra góða bolta og skoruðum í tómt mark Frakkanna. Þannig komum við okkur aftur inn í leikinn.“

Andri hrósaði leikmönnum sínum sérstaklega fyrir það hvernig þeir kláruðu leikinn.

„Strákarnir fá risahrós fyrir lokamínútur leiksins. Við vorum í vondri stöðu en snérum henni okkur í hag. Sigurinn var verðskuldaður.“ Franska liðið hafði mikla yfirburði hvað varðar stærð og hraða að mati Andra.

„Frakkarnir hafa á að skipa ógnarsterku liði. Frábærar skyttur, heimsklassa hornamenn og geggjaða leikstjórnendur. Það fór mikil orka í leikinn enda stærð og hraði eitthvað sem Frakkarnir voru okkur fremri.“

Morgan Goði veikur

Morgan Goði Garner einn af þremur markvörðum í liði Íslands var ekki með liðinu í dag en hann vaknaði veikur í morgun. „Hann hvílir sig fram að Ungverjaleiknum á sunnudaginn. Við vonumst til að hann verði orðinn góður þá.“

Ísland mætir því Ungverjum á sunnudaginn í leik um fimmta sætið. Liðin mættust fyrr á mótinu og þá hafði Ísland töluverða yfirburði. Andri segir fyrri leikinn þó hafa takmarkað gildi þegar flautað verður til leiks á sunnudaginn.

„Við nýtum morgundaginn til að hvílast og undirbúa okkur fyrir leikinn gegn Ungverjum um 5. sætið. Úrslitin fyrr í keppninni gefa okkur lítið fyrir leikinn annað en sjálfstraust inn í leikinn. Við þekkjum vel til ungverska liðsins, líkt og þeir þekkja okkur. Þetta verður því án efa hörkuleikur. Strákarnir eru staðráðnir í að ljúka mótinu með sigri.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top