Víkingur í viðræðum við erlendan leikmann
Flames-handball

Nýliðar Víkings í Olís-deild kvenna eru samkvæmt heimildum Handkastsins í viðræðum við serbneska línumanninn, Edita Nuković um að leika með liðinu á komandi tímabili.

Edita er með tvöfalt ríkisfang en hún er einnig með danskt vegabréf. Hún lék á síðasta tímabili með Jomi Salerno á Ítalíu og þar áður með HSG Bensheim/Auerbach í Þýskalandi. Tímabilið 2019/2020 lék hún með Aarhus í Danmörku.

Edita sem varð 29 ára á föstudaginn síðastliðinn lék með Jomi Salerno í Evrópubikarnum á síðustu leiktíð en liðið fór alla leið í 16-liða úrslit keppninnar, skoraði Edita 25 mörk í keppninni.

Jomi Salerno endaði í 2.sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en liðið var ítalskur meistari ári áður. 

Anita Muratovic var á dögunum kynnt sem nýr leikmaður Víkings en Anita lék í heimalandi sínu, Svartfjallalandi á síðustu leiktíð en þar áður þrjú tímabil í Færeyjum.

Landi Víkingur, danska Serbanum yrði það mikil styrking fyrir nýliða Víkings sem enduðu í 3.sæti Grill66-deildarinnar á síðustu leiktíð en fengu sæti í Olís-deildinni eftir að liðunum hafi verið fjölgað úr átta liðum í tíu.

Rætt var um stöðu Víkings og annara liða í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top