Elísa framlengir til 2029 við Val
Baldur Þorgilsson)

Línumaðurinn Elísa Elíasdóttir hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild Vals til ársins 2029.

Elísa er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum en gekk í raðir Vals frá ÍBV sumarið 2024 og hefur verið gríðarlega mikilvæg hjá Val síðastliðin 2 tímabil. Auk þess er hún mikilvæg í Íslenska A-landsliðinu.

„Það eru frábær tíðindi fyrir félagið að Elísa sé búin að framlengja samninginn sinn. Hún hefur verið lykilleikmaður hjá liðinu undanfarin ár og einnig verið frábær liðsmaður. Elísa hefur sannað sig sem einn öflugasti línumaður landsins bæði með Val og íslenska landsliðinu. Hún mun áfram gegna mikilvægu leiðtogahlutverki innan sem utan vallar og miðla sinni reynslu til yngri leikmanna félagsins,“ segir Anton Rúnarsson, þjálfari meistaraflokks kvenna í tilkynningu frá Val í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top