Í vikunni gekk lettneski landsliðsmaðurinn, Endijs Kusners í raðir Flensborg í þýsku 3.deildinni frá Herði en Kusners hefur leikið með Herði síðustu sex tímabil en hann kom til Íslands árið 2020 og lék eitt tímabil með liðinu í Olís-deildinni. Í nýjasta þætti Handkastsins var farið yfir öll liðin í Olís-deildum karla og kvenna og rætt hvar liðin gætu styrkt sig fyrir komandi tímabil. Þar nefndi Davíð Már Kristinsson sem var gestur þáttarins að leikmaður eins og Endijs hefði getað nýst Stjörnunni vel. ,,Það hefði verið geggjað fyrir Stjörnuna að fá leikmann eins og Ágúst Inga Óskarsson en hann var mjög nálægt því að ganga til liðs við þá. Þá fór Endijs Kusners í þýsku 3.deildina á dögunum, ég var búinn að heyra að Stjarnan hafi haft samband við hann. Hann hefði verið flottur í Garðabænum og hefði hjálpað þeim helling,” sagði Davíð Már Kristinsson. ,,Ég held að flestir leikmenn sem hafa einhverja reynslu úr deildinni myndi hjálpa Stjörnunni eins og staðan er núna. Ég held að fókusinn sé að fá rétthendan leikmann fyrir utan sem getur líka spilað vörn,” bætti Stymmi klippari við. Hægt er að hlusta á nýjasta þátt Handkastsins hér.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.