Jakob Ingi ekki væntanlegur aftur fyrr en eftir áramót
ÍBV

ÍBV gerir ráð fyrir því að Jakob Ingi Stefánsson verði ekki klár til keppni fyrr en eftir áramót, en hornamaðurinn hefur verið frá keppni síðan hann sleit krossband í desember á síðasta ári.

Jakob gekk til liðs við ÍBV fyrir síðustu leiktíð eftir langa og farsæla dvöl hjá Gróttu. Meiðslin settu hins vegar snemma strik í reikninginn og hefur hann síðan unnið markvisst að endurhæfingu.

Sigurður Bragason, aðstoðarþjálfari ÍBV, segir endurhæfinguna ganga vel en að félagið ætli sér ekki að flýta endurkomunni.

„Honum gengur vel, hann er auðvitað í topp standi alltaf enda fimleikakall. Við erum samt ekkert að búast við honum fyrr en eftir stopp í janúar. Ef allt verður í toppstandi þá mögulega í nóvember,“ sagði Sigurður í samtali við Handkastið.

ÍBV brást við fjarveru Jakobs með því að fá Hákon Daða Styrmisson til félagsins um áramótin. Hákon lék með Eyjamönnum eftir áramót en hefur nú snúið aftur á fast land og gengið til liðs við Aftureldingu.

ÍBV mætir Haukum á Ásvöllum í 1.umferð Olís-deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top