Sigtryggur Daði framlengir um 1 ár við ÍBV

Sigtryggur Daði Rúnarsson hefur framlengt samning sinn við ÍBV til ársins 2027.

Sigtryggur Daði hefur verið hjá ÍBV síðan haustið 2020 og er búinn að koma sér mjög vel fyrir á Eyjunni fögru. Hann er einn af reynslumestu mönnum liðsins og var í Íslandsmeistaraliði ÍBV árið 2023.

Hann getur leyst allar stöðurnar fyrir utan og er öflugur varnarmaður. Hann skoraði 38 mörk í 14 leikjum á síðasta keppnistímabili.

"Við erum glöð að halda Sidda innan raða ÍBV áfram og hlökkum til áframhaldandi samstarfs" segir í tilkynningu frá ÍBV.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top