Mæðgur léku saman með ÍR
Egill Bjarni Friðiónsson

Sólveig Lára Kjærnested gæti leikið með kvennaliði ÍR í Olís-deildinni á næstu leiktíð þrátt fyrir að vera komin á fimmtugsaldurinn.

Sólveig Lára tók handboltaskóna af hillunni á síðustu leiktíð og lék með ÍR. Hún hætti sem þjálfari kvennaliðs ÍR síðasta sumar og tók Grétar Áki Andersen við liðinu en Grétar var aðstoðarmaður Sólveigar með ÍR á síðustu leiktíð.

Sólveig Lára lagði skóna á hilluna sumarið 2021 eftir 20 ára meistaraflokksferil. Hún lék 19 ár með Stjörnunni og eitt ár erlendis í atvinnumennsku. Hún er hinsvegar uppalin í ÍR og lék með liðinu á síðustu leiktíð.

Hún var í leikmannahópi ÍR sem vann HK í æfingaleik á föstudagskvöldið og það bendir því flest til þess að hún ætli að taka slaginn með ÍR á komandi tímabili. Það sem gerir þetta enn athyglisverðara er að dóttir Sólveigar Láru, Katrín Ásta Jóhannsdóttir, fædd árið 2010 lék einnig með ÍR í æfingaleiknum sem vannst með einu marki. Katrín Ásta var í eldlínunni með U16 ára landsliði Íslands á Opna Evrópumótinu í Gautaborg í síðasta mánuði.

Sólveig er uppalin í ÍR en fór 15 ára til Stjörnunnar og var þar allan sinn feril að undanteknu einu ári erlendis. Sólveig varð Íslandsmeistari með Stjörnunni í þrisvar sinnum, bikarmeistari í fimm skipti og deildarmeistari í þrjú skipti. Ásamt því tók hún þátt í tveimur Evrópukeppnum með Stjörnunni. Sólveig lék 63 landsleiki með landsliði Íslands og var burðarstólpi í öllum yngri landsliðum Íslands.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top