Bjarki á leið í Garðabæinn
J.L.Long

Leikstjórnandinn, Bjarki Jóhannsson er samkvæmt heimildum Handkastsins á leiðinni til Garðabæjar og leikur með Stjörnunni á láni frá FH í Olís-deildinni á komandi tímabili.

Bjarki sem er uppalinn í Garðabæ gekk í raðir FH síðasta sumar en var í litlu hlutverki hjá fimleikafélaginu á síðustu leiktíð og var í töluvert stærra hlutverki með venslaliði FH, ÍH í Grill66-deildinni.

Bjarki lék á sínum yngri árum með yngri landsliðum Íslands en hann skoraði níu mörk í 21 leik með FH á síðustu leiktíð en með ÍH skoraði hann 133 mörk í 18 leikjum og var markahæsti leikmaður ÍH í Grill66-deildinni í fyrra.

Hans Jörgen Ólafsson og Sveinn Andri Sveinsson hafa yfirgefið Stjörnuna frá síðustu leiktíð og gera má ráð fyrir því að Bjarki eigi að fylla skarð þeirra í liði Stjörnunnar sem leikur undir stjórn Sverris Eyjólfssonar á komandi tímabili.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top