Leikstjórnandinn Sveinn Andri Sveinsson mun ekki leika með Stjörnunni í Olís-deild karla á komandi tímabili. Þar með lýkur tveggja ára dvöl hans í Garðabænum. Sveinn Andri staðfesti þetta í samtali við Handkastið. Hann er á leið úr landi þar sem hann ætlar að setjast á skólabekk í Danmörku, nánar tiltekið í Árósum. Sveinn Andri gekk til liðs við Stjörnuna sumarið 2024 en dvöl hans í Garðabænum hefur einkennst af miklum meiðslavandræðum. Hann varð fyrir alvarlegum meiðslum í æfingaleik á undirbúningstímabilinu fyrir síðustu leiktíð og þurfti í kjölfarið að gangast undir aðgerð. Af þeim sökum kom hann lítið við sögu með Stjörnunni á tímabilinu. Sveinn Andri náði aðeins að leika þrjá leiki með Stjörnunni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim tvö mörk. Ekki liggur enn fyrir hvort hann muni halda áfram að leika handbolta samhliða náminu í Árósum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.