Szymon Bronislaw Bykowski hefur skrifað undir nýjan samning við Víði í Garði og hefur hann gert eins árs samning við félagið. Hann leikur því með liðinu í Grill66-deildinni á komandi tímabili. Víðir unnu sér sæti í Grill66-deildinn eftir gott tímabil í 2.deildinni á síðustu leiktíð. ,,Þetta er stór biti fyrir liðið og enn ein staðfestingin á þeirri sterku uppbyggingu sem á sér stað innan félagsins. Szymon var hreint út sagt óstöðvandi í bláu treyjunni á síðasta tímabili," segir í tilkynningunni frá Víði. Szymon Bukowski skoraði 76 mörk í aðeins 14 leikjum með Víði á síðustu leiktíð og var hann einn markahæsti maður liðsins. ,,Það segir sig sjálft hvað það skiptir liðið miklu máli að halda í leikmann í slíku formi. Það er ómetanlegt fyrir Víði að binda jafn öflugan og marksækinn leikmann félaginu áfram, og við erum sannfærð um að Szymon á eftir að halda áfram að láta að sér kveða á komandi tímabili," segir enn fremur í tilkynningunni. „Mér líður vel hér og það var aldrei spurning í mínum huga að halda áfram. Við erum að byggja upp eitthvað spennandi og ég vil vera hluti af því. Ég ætla mér að halda áfram að skora mörk og hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum," sagði Szymon við undirskriftina. Víðir mætir Gróttu í fyrsta leik sínum í Grill66-deildinni á komandi tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.