Valsarinn, Bjarki Snorrason skoraði glæsilegt mark fyrir U18 ára lið Íslands á Evrópumótinu um síðustu helgi er hann skoraði svokallað sirkusmark í sigri Íslands gegn Frakklandi. Bjarki fékk góða sendingu frá Haukamanninum, Frey Aronssyni upp í loftið og sveif Bjarki inn í teiginn og skoraði framhjá markverði Frakka. Ísland endaði í 5.sæti Evrópumótsins en liðið vann alla sína leiki á mótinu að undanskildum leik gegn Þjóðverjum í 8-liða úrslitum mótsins. Var mark Bjarka valið eitt af fimm bestu mörkum úrslitakeppninnar. Bjarki er sonur landsliðsþjálfarans, Snorra Steins Guðjónssonar sem var einnig í þjálfarateymi U18 ára landsliðsins á EM. Markið hjá Bjarka má sjá hér að neðan. Just 5️⃣ casual ways to ruin a goalkeeper’s day! 🤭 Enjoy the 𝗧𝗢𝗣 𝟱 𝗚𝗢𝗔𝗟𝗦 of the quarter-finals & final weekend ✨#followthefuture #ehfeuro2026 #handball pic.twitter.com/ut6j8eZI3L

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.