GOG fór illa með Val í Færeyjum
Baldur Þorgilsson

Wenzel Nordic Cup í Færeyjum hófst í kvöld með leik Vals og GOG í Þórshöfn.

GOG er eitt af tveimur risum í dönskum handknattleik en liðið lék í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð og verða meðal þátttöku liða í Meistaradeildinni á komandi tímabili. Valsmenn eru ríkjandi Íslands- og deildarmeistarar og verða í Evrópudeildinni. 

Það ríkti því mikil eftirvænting fyrir leiknum í kvöld en Valur mætir meðal annars, Mors-Thy í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í lok september.

Jafnræði var með á liðunum fyrstu tíu mínútur leiksins en í stöðunni en í stöðunni 4-5 fyrir GOG skoruðu Danirnir fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 4-9 en mest náði liðið níu marka forystu í fyrri hálfleik í stöðunni 7-16. Hjalte Lykke og Óli Mittún fóru mikið í markaskorun hjá GOG.

Staðan í hálfleik 12-19 GOG í vil. Valur náði mest að minnka muninn í fjögur mörk í upphafi seinni hálfleiks en danska liðið reyndist sterkari aðilinn undir lok leiks og vann að lokum tólf marka sigur, 28-40.

Gunnar Róbertsson var markahæstur í liði Vals með átta mörk og Arnór Snær Óskarsson skoraði sex. Tjörvi Týr Gíslason og Andri Finnsson komu næstir með þrjú mörk hvor.

Hjá GOG var Manuel Zehnder með tólf mörk, Óli Mittún skoraði níu mörk og Hjalte Lykke sjö.

Valur mætir þýska stórliðinu, Kiel á morgun en leik Kiel og H71 var frestað í dag vegna veðurskilyrða í Færeyjum en Kiel voru í vandræðum með að koma sér til Færeyja.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top