Valur mættir til Færeyja – Mætir GOG í dag
Baldur Þorgilsson

Íslands- og deildarmeistarar Vals eru mættir til Þórshafnar í Færeyjum þar sem liðið tekur þátt í afar sterku alþjóðlegu æfingamóti dagana 13. til 16. ágúst. Fyrsti leikur Vals er í dag gegn danska stórliðinu GOG.

Mótið er mikilvægur liður í undirbúningi Vals fyrir komandi tímabil í Olís-deildinni, en mótherjarnir í Færeyjum verða af allra sterkasta tagi. Valur verður einnig í eldlínunni í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í vetur, ásamt FH.

Auk Vals taka H71 frá Færeyjum, THW Kiel frá Þýskalandi og GOG frá Danmörku þátt í mótinu. Kiel er eitt stærsta félag Evrópu og GOG leikur í Meistaradeild Evrópu á komandi tímabili.

Leikirnir fara fram í þjóðarhöllinni í Færeyjum við Tjarnir. Samkvæmt færeyska miðlinum in.fo er um að ræða stærsta félagsliðamót sem haldið hefur verið í Færeyjum.

Mótið hefur einnig sterka tengingu við Færeyjar þegar litið er til erlendu liðanna. Færeysku landsliðsmennirnir Allan Norðberg og Bjarni í Selvindi leika með Val, auk þess sem þjálfari liðsins, Ágúst Þór Jóhannsson, stýrði færeyska kvennalandsliðinu á sínum tíma.

Þá er færeyski landsliðsmaðurinn Elias Ellefsen á Skipagøtu á mála hjá Kiel en frændi hans, Óli Mittún, leikur með GOG. Færeyska liðið H71 mætir einnig til leiks sem ríkjandi færeyskur meistari.

Leikir Vals á mótinu:

  • 13. ágúst kl. 17:00: Valur – GOG
  • 14. ágúst kl. 17:00: Valur – Kiel
  • 16. ágúst kl. 14:00: H71 – Valur

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top