Ágústa Rún tekur sér frí frá handbolta
Baldur Þorgilsson

Línumaðurinn, Ágústa Rún Jónasdóttir leikur ekki með Val í Olís-deild kvenna á komandi tímabili ef marka má færslu félagsins á samfélagsmiðlum sínum þar sem henni er þakkað fyrir framlag sitt til félagsins ásamt fjórum öðrum leikmönnum sem hafa yfirgefið Val.

,,Ágústa Rún Jónasdóttir hefur ákveðið að taka sér frí frá handbolta um óákveðinn tíma," segir í tilkynningunni frá Val.

Ágústa sem er tvítug var í yngri landsliðum Íslands en var ekki valin í U20 ára landsliðið sem fór á HM í Kína fyrr í sumar. Hún var óheppin með meiðsli á síðustu leiktíð en hún lék 22 leiki með Val í Olís-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði 12 mörk. Þá lék hún einnig með Val 2 í Grill66-deildinni þar sem hún skoraði 46 mörk í 13 leikjum.

Í sömu færslu voru þær Thea Imani, Lilja Ágústsdóttir og Lovísa Thompson kvaddar og óskað góðs gengis í atvinnumennsku.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top