Karlalið ÍBV er þessa dagana í æfingaferð í Hollandi þar sem liðið er á fullu í sínum undirbúningi fyrir komandi tímabil. Í gær vann liðið sterkan sigur á Volendam, 35-29. Volendam varð hollenskur meistari á síðasta tímabili og því ágætis próf fyrir Eyjamenn á undirbúningstímabilinu. Svenni José Rivera var markahæstur ÍBV með átta mörk, Dagur Arnarsson skoraði sjö og þeir Daníel Þór Ingason, Sigtryggur Daði Rúnarsson og Kristófer Ísak Bárðarson skoruðu fjögur mörk hver. Petar Jokanovic varði 11 skot í marki ÍBV og Gabríel bætti við sjö vörðum skotum. ,,Erlingur Richardsson fékk gult spjald fyrir kjaftbrúk, en að öðru leyti er allt gott að frétta af hópnum og leikmenn hressir," sagði Sigurður Bragason aðstoðarþjálfari ÍBV í skeyta sendingu við Handkastið. Dagskrá ÍBV í Hollandi heldur áfram í dag. Þá mætir Ungmennalið ÍBV, ungmennaliði Volendam en aðalliðið leikur gegn bandaríska landsliðinu. Á laugardag lýkur leikjadagskránni þegar ÍBV mætir Aalsmeer. Eyjamenn halda svo heim á sunnudag eftir vel heppnaða æfingaferð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.