KA/Þór vann fyrsta leik Opna Norðlenska mótsins í kvennaflokki í gær þegar liðið tók á móti Aftureldingu. KA/Þór leiddi hálfleik 13-11 en lokatölur 28-21 heimakonum í vil. Hjá Afturelding var Katrín Helga Davíðsdóttir markahæst með átta mörk og Mattý Rós Birgisdóttir skoraði fjögur. Rakel Dóróthea Ágústsdóttir, Drífa Garðarsdóttir og Karen Hrund Logadóttir skoruðu tvö mörk hver. Í kvöld mætast KA/Þór og ÍR klukkan 18:30 en ÍR og Afturelding spila síðan lokaleik mótsins á morgun.
Færeyingurinn, Jóan Rúnadóttir var markahæst í liði KA/Þór með 13 mörk en hún gekk í raðir félagsins í sumar. Bergrós Ásta Guðmundsdóttir skoraði sex mörk og Lydía Gunnþórsdóttir skoraði fjögur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.