Þórsarar unnu grannaslaginn gegn KA í upphafs leik Opna Norðlenska mótsins sem fram fer í KA-heimilinu þessa vikuna. Liðin mættust á miðvikudagskvöldið og hafði Þór betur með þremur mörkum 34-31 í hörkuleik. Klukkan 20:30 í kvöld mætir Þór síðan Grill66-deildarliði ÍR í öðrum leik mótsins en á morgun mætast síðan KA og ÍR í lokaleik mótsins. Hákon Ingi Halldórsson og Oliver Christensen voru markahæstir í liði Þórs með sex mörk í leiknum. Bertram Simonsen og William Skovsager skoruðu fimm mörk hvor og Mikkel Jensen skoraði fjögur mörk ásamt Hafþóri Vignissyni. Brynjar Hólm Grétarsson og Þórður Tandri Ágústsson voru ekki með Þórsurum í leiknum. Hjá KA var Dagur Gautason markahæstur með sjö mörk, Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði sex ásamt Patreki Stefánssyni. Einar Birgir Stefánsson skoraði fimm mörk og Morten Boe Linder skoraði fjögur. Dagur Árni Heimisson var ekki með KA í leiknum og þá er Giorgi Dikhaminjia ennþá að glíma við meiðsli frá síðustu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.