Karlalið ÍR töpuðu báðum leikjum sínum á Opna Norðlenska mótinu sem fram fór í síðustu viku og lauk á laugardaginn með leik Þórs og ÍR. Mótið fór fram í KA-heimilinu. ÍR tapaði fyrri leik sínum á mótinu 46-33 gegn KA en á laugardaginn tapaði liðið gegn Þór 45-39. Með sigrinum tryggði Þór sér sigur á Opna Norðlenska mótinu en liðið vann nágranna sína í KA í fyrsta leik mótsins á miðvikudagskvöldið. Aðeins þrjú lið tóku þátt í mátinu. ÍR sem féllu úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð og leika í Grill66-deildinni á næstu leiktíð fengu því samtals 91 mark á sig í leikjunum tveimur gegn KA og Þór. Alls skoraði liðið 72 mörk sem í flestum tilfellum ættu að duga liðum til að innbyrða sigur. Bjartur Fritz Bjarnason var markahæstur í liði ÍR með níu mörk í leiknum gegn Þór og þeir Bernard Kristján Darkoh og Jökull Blöndal Björnsson skoruðu sjö mörk hvor. Í liði Þórs var Daninn, William Skovsager markahæstur með tíu mörk. Jóhann Geir Sævarsson sem gekk í raðir Þórs frá KA skoraði sjö mörk. Oliver, Mikkel, Oddur og Úlfur skoruðu síðan fjögur mörk hvor. Þórsarar voru hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins á næstu leiktíð en sigrarnir tveir á Opna Norðlenska mótinu gefa góð fyrirheit fyrir Þórsara fyrir komandi tímabil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.