ÍBV opið fyrir því að bæta við markmanni
Eyjólfur Garðarsson

ÍBV er enn opið fyrir því að bæta við markmanni fyrir komandi tímabil í Olís-deild kvenna en markaðurinn gerir félaginu erfitt fyrir.

Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, staðfesti þetta í samtali við Handkastið þegar hann var spurður hvort félagið væri enn í leit að nýjum markmanni.

ÍBV hefur nú Ólöfu Maren Bjarnadóttur og Töru Sól sem markmenn en Magnús segir félagið vera opið fyrir því að bæta þriðja markverði við hópinn.

„Við erum opin fyrir því að taka inn markmann með þeim Ólöfu og Töru. Það er hægara sagt en gert eins og markaðurinn er í dag,“ sagði Magnús. Staðan hjá yngri flokkum félagsins gerir málið enn erfiðara.

„Vandamálið er náttúrulega að við eigum ekki markmenn í 3. flokki kvenna og eru því næstu markmenn okkar, á eftir Ólöfu og Töru, í 4. flokki, sem er heldur ungt,“ sagði Magnús.

ÍBV tekur á móti KA/Þór í 1.umferð Olís-deildar kvenna, laugardaginn 5.september.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top