Ragnarsmótið hefst í kvöld
Sævar Jónasson

Ragnarsmót karla hefst í kvöld þegar tveir leikir fara fram á mótinu. Konurnar hefja leik klukkan 17:30 þegar Selfoss og Víkingur mætast og sömu lið mætast í karlaflokki klukkan 19:30 í kvöld.

Um er að ræða 38. árið sem mótið fer fram en það var fyrst haldið árið 1989. Mótið er haldið til minningar um Ragnar Hjálmtýsson sem lést í bílslysi árið 1988, aðeins 18 ára að aldri.

Þáttakendur karlamegin þetta árið eru Selfoss, ÍBV, ÍR og Víkingur. Hjá konunum eru það Selfoss, ÍBV, KA/Þór og Víkingur sem taka þátt.

Leikirnir í Ragnarsmóti kvenna:

Mánudagur, 17.ágúst:
17:30 Selfoss - Víkingur - kvenna
19:30 Selfoss - Víkingur - karla

Þriðjudagur, 18.ágúst:
17:30 Víkingur - ÍBV - kvenna
19:30 ÍR - Víkingur - karla

Miðvikudagur, 19.ágúst:
17:30 Selfoss - ÍBV - kvenna
19:30 Selfoss - ÍR - karla

Fimmtudagur, 20.ágúst:
17:30 ÍBV - Víkingur - karla
19:30 KA/Þór - Víkingur - kvenna

Föstudagur, 21.ágúst:
17:30 Selfoss - ÍBV - karla
19:30 ÍBV - KA/Þór - kvenna

Laugardagur, 22.ágúst:
12:00 Selfoss - KA/Þór - kvenna
14:00 ÍBV - ÍR - karla

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top