Selfoss vann stórsigur á Víkingi
Sævar Jónasson

Fyrsti leikur Ragnarsmóts kvenna fór fram í kvöld þegar Selfoss og Víkingur mættust. Liðin hafa sætaskipti í Olís-deild kvenna fyrir komandi tímabil. Selfoss féll úr deildinni á síðasta tímabili á meðan Víkingur fékk sæti í deildinni eftir að ákveðið var á ársþingi HSÍ að fjölga liðum í deildinni úr átta í tíu.

Það var þó lítill vafi á því hvort liðið væri sterkara í kvöld. Selfoss vann öruggan 39-20 sigur eftir að hafa verið 22-9 yfir í hálfleik.

Heimakonur tóku öll völd á vellinum strax í upphafi og komust í 9-1. Víkingur átti í miklum erfiðleikum með að tengja saman sendingar og Selfoss refsaði gestunum grimmilega með hverju hraðaupphlaupsmarkinu á fætur öðru.

Staðan var 13-3 eftir 15 mínútna leik og Selfoss hélt áfram að auka forskotið. Í hálfleik munaði 13 mörkum, 22-9.

Munurinn varð mestur 20 mörk þegar Selfoss komst í 34-14 á 48. mínútu. Lokatölur urðu svo 39-20 og því nítján marka sigur Selfoss.

Perla Ruth Albertsdóttir var markahæst hjá Selfossi með 11 mörk. Harpa Valey Gylfadóttir skoraði sex mörk en Arna Kristín Einarsdóttir, Hulda Dís Þrastardóttir, Hulda Hrönn Bragadóttir og Sylvía Bjarnadóttir skoruðu fjögur mörk hver.

Hjá Víkingi var Anita Muratovic markahæst með átta mörk. Eyrún Ósk Hjartardóttir og Ivana Meincke skoruðu fjögur mörk hvor.

Greinilegt er að þjálfarateymi Víkings á töluvert verk fyrir höndum fyrir sitt fyrsta tímabil í Olís-deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top