Elmar jákvæður þrátt fyrir óvissuna hjá Nordhorn
Nordhorn Lingen

Elmar Erlingsson og félagar hans í HSG Nordhorn-Lingen hafa staðið í ströngu á sterku æfingamóti á heimavelli um helgina. Þrátt fyrir tvö töp gegn stórliðum Barcelona og Paris Saint-Germain var íslenski leikmaðurinn ánægður með frammistöðu liðsins.

Nordhorn-Lingen, sem leikur í þýsku B-deildinni, hefur á sama tíma þurft að glíma við óvissu vegna leyfismála félagsins. Elmar segir leikmennina þó ekki geta gert annað en að einbeita sér að undirbúningnum fyrir tímabilið.

Mótið, Premium Cup, er gríðarlega sterkt í ár og Elmar líkti því við úrslitahelgi.

„Þetta er eins og Final Four með HSG Nordhorn,“ sagði Elmar í samtali við Dyn.

Nordhorn mætti Barcelona í undanúrslitum og veitti spænska stórveldinu hörkukeppni áður en Barcelona vann 44-41.

Í leiknum um þriðja sætið beið síðan annað stórveldi, Paris Saint-Germain. Þar hafði franska liðið betur, 44-38. Þrátt fyrir töpin tvö var Elmar ánægður með það sem Nordhorn tók út úr helginni.

„Úrslitin eru í raun frábær fyrir okkur. Þótt við höfum tapað erum við mjög ánægðir og okkur líður vel eftir helgina.“

Árangurinn á vellinum hefur þó ekki eytt óvissunni sem ríkir í kringum félagið vegna leyfismála þess. Elmar var spurður hvernig leikmennirnir næðu að halda einbeitingu við slíkar aðstæður.

„Það eina sem við getum gert er einfaldlega að halda áfram. Við erum í undirbúningstímabilinu og við gerum öll ráð fyrir því að við þurfum einfaldlega að fara inn í venjulegt tímabil og vera í góðu formi.“

Elmar var einn besti leikmaður Nordhorn á mótinu og segir leikmannahópinn einbeita sér að því sem hann getur stjórnað.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top