Elvar Örn yfirgefur Magdeburg
Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP

Íslenski landsliðamðurinn, Elvar Örn Jónsson yfirgefur þýsku meistarana í SC Magdeburg að loknu tímabilinu 2026/27. Félagið greinir frá þessu í dag.

Elvar Örn, sem er 28 ára gamall gekk til liðs við Magdeburg sumarið 2025 eftir fjögurra ára dvöl hjá MT Melsungen. Hann er á leið inn í sitt annað tímabil með Magdeburg sem urðu þýskir meistarar á síðustu leiktíð.

Hann á að baki langan feril í Danmörku og Þýskalandi en áður en hann fór til Melsungen lék hann með Skjern. Elvar Örn er uppalinn hjá Selfossi og hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár.

„Það er mjög miður að Elvar hafi ákveðið að yfirgefa okkur fyrr en til stóð. Hann aðlagaðist okkur fljótt og fyllti fullkomlega upp í sitt hlutverk innan liðsins,“ segir Bennet Wiegert, þjálfari og framkvæmdastjóri íþróttamála hjá Magdeburg.

„Ég er hundrað prósent viss um að Elvar muni gefa allt fyrir félagið og liðið fram á síðasta dag sinn hjá SC Magdeburg.“

Elvar Örn kveðst hafa notið sín afar vel í Magdeburg og segist þakklátur fyrir tímann hjá félaginu.

„Ég hef átt frábæran tíma í Magdeburg og er þakklátur fyrir þá reynslu sem ég hef fengið hér. Frá fyrsta degi hef ég haft það mjög gott hjá félaginu, í liðinu og í borginni. Ég mun sakna stuðningsmannanna og þeirrar einstöku stemningar sem ríkir í GETEC Arena mjög mikið.“

„Að vinna þýska meistaratitilinn var sérstaklega stór stund og draumur sem rættist. Þótt leið mín liggi annað eftir þetta tímabil er allur minn fókus á SC Magdeburg. Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að við getum fagnað fleiri árangri saman og barist um titla.“

Elvar Örn verður því áfram hjá Magdeburg út næsta tímabil en fer síðan á vit nýrra ævintýra. Ekki hefur verið greint frá því hvaða félag verður hans næsti áfangastaður en hann hefur verið orðaður við Rhein Neckar Löwen.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top