Hafnarfjarðarliðin, Haukar og FH unnu bæði sína leiki í Hafnarfjarðarmótinu í kvöld en tveir leikir fóru fram í mótinu á Ásvöllum í kvöld. Í fyrri leik dagsins vann Haukar, sjö marka sigur á HK 27-20 eftir að hafa verið 14-11 yfir í hálfleik. Í seinni leik mótsins vann FH nokkuð sannfærandi fimm marka sigur á Aftureldingu 40-35 en FH var sjö mörkum yfir í hálfleik 25-18. Fyrri leikur kvöldsins var jafn til að byrja með en í stöðunni 7-6 fyrir Hauka komust þeir í 10-6 og svo í 14-9 sem var mesti munurinn á liðunum í fyrri hálfleik. HK skoraði síðan tvö síðustu mörk fyrri hálfleiks. Haukar hófu seinni hálfleikinn af miklu krafti og voru skyndilega komnir með sjö marka forskot í stöðunni 13-30 og áfram héldu þeir að bæta í. Mest náði liðið níu marka forskoti en HK minnkaði muninn undir lokin og lokatölur 27-20. Það sama var upp á teningnum í seinni leiknum þar sem FH var mest með átta marka forskot í fyrri hálfleik í stöðunni 12-4 og 20-12 en Mosfellingar réðu illa við sóknarleik FH-inga. FH komst í 5-1 og eftir það náðu Mosfellingar aldrei að gera þetta að alvöru leik. FH-ingar héldu þægilegu forskoti út allan leikinn og náðu mest níu marka forystu í leiknum í stöðunni 38-29 og 39-30. Lokatölur hinsvegar, 40-35 en Afturelding náði aðeins að bjarga andlitinu undir lok leiks. Harri Halldórsson var markahæstur í liði Aftureldingar með sjö mörk og Hákon Daði Styrmisson skoraði sex. Ævar Smári Gunnarsson skoraði fimm og Kristján Ottó Hjálmsson fjögur. Hjá FH var Jón Bjarni Ólafsson og Ómar Darri Sigurgeirsson markahæstir með sex mörk. Brynjar Narfi Arndal skoraði fimm og Leonharð Þorgeir Harðarson skoraði fjögur mörk. Ágúst Guðmundsson, Eiður Rafn Valsson og Ingvar Dagur Gunnarsson ásamt Símon Michael Guðjónssyni skoruðu allir þrjú mörk hver. Hjá HK var Tómas Bragi Starrason markahæstur með fjögur mörk og Orfeus Andreu og Tómas Sigurðarson skoruðu þrjú mörk. Ingiberg Snær Erlingsson, Leó Snær Pétursson, Trúgvi Hávardsson og Örn Alexandersson skoruðu tvö mörk hver en Örn fékk að líta rauða spjaldið. Hjá Haukum var Sigurður Snær Sigurjónsson markahæstur með sjö mörk. Birkir Snær Steinsson og Skarphéðinn Ívar Einarsson skoruðu sex mörk hvor. Hjörtur Ingi Halldórsson og Þráinn Orri Jónsson skoruðu tvö.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.