
Víkingur hafði betur í öðrum leik sínum á jafn mörgum dögum í Ragnarsmótinu þegar liðið mætti ÍR á Selfossi í kvöld. Víkingur var sex mörkum yfir hálfleik, 19-13 og vann að lokum sjö marka sigur 34-27 en Víkingur og ÍR gerðu sæta skipti í sumar eftir að Víkingur fór upp í Olís-deildina á kostnað ÍR sem féll niður í Grill66-deildina. Víkingur náði snemma góðu forskoti í leiknum og komst í 9-4 eftir tæplega 15 mínútna leik. ÍR hóf seinni hálfleikinn af krafti og minnkaði muninn í tvö mörk, 20-18 en nær komust Breiðhyltingar ekki. Víkingur juku forskotið á nýjan leik og unnu að lokum sjö marka sigur. Örn Kolur Kjartansson var markahæstur í liði ÍR með sex mörk. Bergur Hrafn Ásgeirsson og Róbert Snær Örvarsson skoruðu fjögur mörk hvor og þeir Eyþór Ari Waage, Nökkvi Blær Hafþórsson og Patrekur Smári Arnarsson skoruðu þrjú mörk hvor. Hjá Víkingi var Ásgeir Snær Vignisson og Kristófer Snær Þorgeirsson markahæstir með fimm mörk hvor. Brynjar Jökull Guðmundsson skoraði fjögur. Fjórir leikmenn skoruðu þrjú mörk, þeir Arnar Már Ásmundsson, Kristján Helgi Tómasson, Páll Þór Kolbeins og Sigurður Páll Matthíasson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.