Katla María í Val
Valur handbolti

Þrefaldir meistarar Vals í kvennaflokki kynntu nýjan leikmann til félagsins í kvöld þegar Katla María Magnúsdóttir var kynnt sem nýr leikmaður liðsins.

Katla María gengur í raðir Vals eftir eins árs dvöl hjá Holstebro í dönsku B-deildinni en liðið vann sér sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Katla María var hinsvegar ekki í stóru hlutverki hjá liðinu og eftir að liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni var ljóst að kröftum Kötlu var ekki óskað eftir hjá félaginu.

Katla María sem er rétthent skytta kemur með mikla reynslu inn í ungt og efnilegt Valslið en töluverðar breytingar hafa orðið á liðinu frá síðustu leiktíð. Lovísa Thompson, Thea Imani Sturludóttir og Lilja Ágústsdóttir hafa allar yfirgefið félagið og leika erlendis á komandi tímabili.

Katla María sem er uppalin á Selfossi lék með Selfossi áður en hún gekk í raðir Holstebro fyrir síðasta tímabil en hún hefur einnig leikið með Stjörnunni hér á landi.

Þá var hún einnig í A landsliði Íslands og tók meðal annars þátt í Heimsmeistaramótinu sem haldið var í Stafangri árið 2023.

,,Ég er virkilega ánægður að Katla María hafi ákveðið að taka slaginn með okkur í vetur. Hún er frábær handboltakona, með mikinn kraft og mun styrkja liðið mikið. Hún er einnig flott fyrirmynd og leiðtogi. Hún kemur með mikil gæði í hópinn og á eftir að vera góð viðbót við hópinn okkar,” sagði Anton Rúnarsson, þjálfari liðsins.

Katla er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Vals í sumar en áður hefur liðið fengið Britney Cots og Mariu Beder frá Færeyjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top