Selfyssingar skoruðu 40 mörk gegn ÍR
Egill Bjarni Friðjónsson

Selfoss vann annan leik sinn á Ragnarsmótinu í kvöld eftir að liðið hafði betur gegn ÍR með fimm mörkum 40-35.

Selfoss leiddi í hálfleik með þremur mörkum 20-17 en enn leitar þjálfarateymi ÍR að svörum varnarlega en liðið hefur fengið 165 mörk á sig í fjórum æfingaleikjum síðustu daga.

Selfoss náði mest sjö marka forystu í fyrri hálfleik í stöðunni 14-7 en ÍR minnkaði muninn niður í þrjú mörk fyrir hálfleik. Nær komust ÍR-ingar hinsvegar ekki og var Selfoss alltaf skrefinu á undan í seinni hálfleik og hélt ÍR-ingum í þægilegri fjarlægð allan leikinn og uppskar að lokum fimm marka sigur.

Anton Breki Hjaltason og Guðjón Óli Ásvaldsson voru markahæstir í liði Selfoss með sex mörk hvor. Aron Leo Guðmundsson og Skarphéðinn Steinn Sveinsson skoruðu fimm mörk og þá skoraði Sveinn Ísak Hauksson fjögur.

Hjá ÍR var Bernard Kristján Darkoh atkvæðamestur með tíu mörk. Bjartur Fritz Bjarnason skoraði sjö mörk og Sveinn Brynjar Agnarsson og Viktor Freyr Viðarsson skoruðu sex mörk hvor. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top