
Aron Rafn Eðvarðsson hyggst halda áfram að spila með uppeldisfélagi sínu, Haukum, á komandi tímabili. Þetta staðfesti markvörðurinn í samtali við Handkastið á dögunum. Samningur Arons Rafns við Hauka rann út fyrr í sumar en hann gerði eins árs samning við félagið fyrir ári síðan. Þá hafði hann tekið skóna af hillunni eftir að óvænt kom upp markmannsskortur hjá Haukum. Litháinn Vilius Rasimas, sem átti að vera einn af markmönnum liðsins, hætti óvænt skömmu fyrir mót vegna meiðsla og í kjölfarið ákvað Aron Rafn að snúa aftur á handboltavöllinn og hjálpa uppeldisfélaginu. Aron Rafn var hins vegar ekki með Haukum þegar liðið mætti Aftureldingu í fyrsta leik Hafnarfjarðarmótsins á dögunum. Hann glímir nú við meiðsli sem gætu orðið til þess að hann missi af fyrstu leikjum Hauka á tímabilinu. Haukar hefja keppnistímabilið með stórleik gegn Val í Meistarakeppni HSÍ föstudaginn 28. ágúst. Fyrsti leikur Hauka í Olís-deildinni verður síðan gegn ÍBV. Haukar geta því vænst þess að hafa Aron Rafn áfram á milli stanganna í vetur, en óvíst er hvenær hann verður orðinn leikfær vegna þeirra meiðsla sem hann glímir nú við.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.