

HSG Nordhorn-Lingen mun hefja nýtt tímabil í þýsku 2. deildinni með sex stig í mínus eftir að óháð leyfisnefnd þýsku handknattleiksdeildarinnar staðfesti refsingu á félagið vegna fjárhagsstöðu þess. Félagið hefur átt við fjárhagslega erfiðleika að stríða og þýska deildarkeppnin hafði þegar gefið Nordhorn-Lingen frest og sett á félagið ýmsar kvaðir vegna stöðunnar. Elmar Erlingsson er leikmaður Nordhorn-Lingen. Nú hefur verið ákveðið að félagið verði svipt sex stigum fyrir tímabilið 2026/27. Athygli vekur þó að stigin verða ekki dregin frá fyrr en eftir að síðasta umferð tímabilsins hefur verið leikin. Ákvörðunin byggir á því að fjárhagsleg staða félagsins hafi reynst verulega frábrugðin þeim upplýsingum sem Nordhorn-Lingen lagði fram í leyfisumsókn sinni fyrir tímabilið 2026/27. Félagið þarf jafnframt að uppfylla frekari skilyrði sem sett voru vegna fjárhagsstöðu þess. Nordhorn-Lingen hafnaði í 6. sæti 2. deildarinnar á síðasta tímabili. Sex stiga refsing hefði því ekki haft áhrif á lokastöðuna þar sem liðið var sjö stigum á undan TuS N-Lübbecke í sjöunda sæti. Nýtt tímabil í þýsku 2. deildinni hefst 28. ágúst og lýkur 5. júní 2027. Félagið fær því ekki einfalt verkefni í baráttunni á komandi tímabili og þarf í raun að vinna upp sex stiga forskot áður en það getur byrjað að bera stöðu sína saman við keppinautana.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.