
Harpa Valey Gylfadóttir hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Selfoss til tveggja ára. Þar með er ljóst að hún leikur með liðinu í Grill66-deildinni á komandi tímabili en liðið féll úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð. Harpa Valey gekk í raðir Selfoss fyrir þremur árum og hefur verið lykilleikmaður í liðinu allar götur síðan. ,,Hún er virkilega öflug á báðum endum vallarins og býr yfir miklum hraða. Handknattleiksdeild Selfoss er mjög ánægð með framlenginguna og spennt að fylgjast með Hörpu halda áfram að bæta sig í vínrauðu treyjunni," segir í tilkynningunni frá Selfossi. Harpa Valey hefur verið í eldlínunni með Selfossi á Ragnarsmótinu í vikunni en liðið vann Víking nokkuð sannfærandi og tapaði með minnsta mun gegn ÍBV í gær. Harpa lék aðeins átta leiki með Selfossi í Olís-deildinni á síðustu leiktíð en hún hefur verið að glíma við meiðsli. Hún virðist hinsvegar vera búin að ná sér af þeim meiðslum og mun hjálpa liðinu að tryggja sér sæti í Olís-deildinni á komandi tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.