KA heimsækir HK í opnunarleik Olís-deildar karla
Egill Bjarni Friðjónsson

HSÍ hefur gefið út leikdaga og leiktíma í Olís-deild karla sem hefst fimmtudaginn 3. september með tveimur leikjum. Umferðin klárast sínum á sunnudeginum þegar Haukar fá ÍBV í heimsókn í stórleik 1.umferðarinnar.

Fyrsti leikur Olís-deildar karla fer fram í Kórnum þar sem HK tekur á móti KA klukkan 19:00. Hálftíma síðar mætast Selfoss og Valur á Selfossi.

Umferðin heldur síðan áfram með tveimur leikjum á föstudagskvöld, einum á laugardegi og þeim síðasta á sunnudeginum. Fyrsta umferðin verður því leikin á fjórum dögum.

Svona lítur 1.umferðin út í Olís-deild karla:

Fimmtudagur, 3.september:

19:00 HK - KA
19:30 Selfoss - Valur

Föstudagur, 4.september:

19:30 Afturelding - Víkingur
20:15 FH - Stjarnan

Laugardagur, 5.september:

18:15 Fram - Þór

Sunnudagur, 6.september:

17:30 Haukar - ÍBV

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top