

HSÍ hefur gefið út leikdaga og leiktíma í Olís-deild kvenna sem hefst laugardaginn 5. september með fjórum leikjum. Umferðin klárast sínum á sunnudeginum þegar Haukar fá nýliða HK í heimsókn. Fyrsti leikur Olís-deildar kvenna fer fram í Skógarseli þar sem ÍR tekur á móti Stjörnunni klukkan 14:00. Breytingar eru á Olís-deild kvenna frá síðustu árum en tíu lið leika í Olís-deildinni í ár, í stað átta undanfarin ár. HK, Grótta og Víkingur eru nýliðar í deildinni. Eftir tvær umferðir, 18 leiki verður deildinni síðan skipt upp í tvo fimm liða riðla þar sem fimm efstu liðin leika einfalda umferð og fimm neðstu liðin leika einfalda umferð. Sama fyrirkomulag er í efstu deild kvenna í knattspyrnu og í körfuboltanum. Í kjölfarið verður síðan farið í átta liða úrslit. Svona lítur 1.umferðin út í Olís-deild kvenna: Laugardagur, 5.september: 14:00 ÍR - Stjarnan Sunnudagur, 6.september: 15:00 Haukar - HK
14:30 ÍBV - KA/Þór
15:00 Valur - Víkingur
16:00 Fram - Grótta

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.