Róbert Örn í Garðabæinn
Egill Bjarni Friðjónsson)

Markvörðurinn, Róbert Örn Karlsson hefur skrifað undir eins árs samning við Stjörnuna og leikur með liðinu á komandi tímabili í Olís-deild karla.

Þetta má sjá á vef handknattleikssambands Íslands þar sem Róbert er kominn með félagaskipti yfir í Stjörnuna og hefur gert eins árs samning. Róbert Örn gengur í raðir Stjörnunnar frá HK.

Róbert Örn lék með HK á síðustu leiktíð en samningur hans við félagið var ekki framlengdur og hefur hann því verið án félags. Stjarnan missti Adam Thorstensen út í atvinnumennsku en hann gekk í raðir Lübeck-Schwartau í þýsku 2.deildinni í sumar og Róbert því ætlað að fylla hans skarð og mynda markvarðarpar með Sigurði Dan Óskarssyni ásamt Baldri Inga Péturssyni.

Róbert Örn gekk alfarið í raðir HK frá Fram sumarið 2022 en þar áður lék hann á láni hjá félaginu eitt tímabil og hefur því verið hjá HK síðustu fimm tímabil. 

Róbert er rúmlega tveggja metra markmaður sem er fæddur árið 1998 og lék með Víking áður en hann lék með Fram.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top