Eyjakonur með sannfærandi sigur á KA/Þór
Egill Bjarni Friðjónsson)

Í kvöld mættust ÍBV og KA/Þór á Ragnarsmótinu í kvennaflokki.

KA/Þór voru í síðasta leik á Ragnarsmótinu einungis með 10 leikmenn á skýrslu en nú höfðu bæst við 2 leikmenn þær Rakel Sara Elvarsdóttir og Kolbrún Gígja Einarsdóttir.

Eyjakonur höfðu gríðarlega yfirburði í leiknum frá fyrstu mínútu. Eftir 15 mínútur var staðan 9-3 fyrir þær og í hálfleik var staðan 17-9.

Í seinni hálfleik hélt það sama upp á teningunum og var sigurinn aldrei í hættu hjá ÍBV. KA/Þór stelpur gerðu reyndar vel og náðu að minnka muninn niður í 3 mörk á tímabili. En lokatölur urðu 28-23 fyrir ÍBV.

Hjá ÍBV var Sandra Erlings markahæst með 9 mörk og Ólöf Maren varði 9 skot.

Hjá KA/Þór var Bergrós Ásta markahæst með 6 mörk og samtals vörðu þær Ingibjörg og Ástrós 13 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top