

Varnarmaðurinn öflugi í liði HK, Styrmir Máni Arnarsson hefur ákveðið að taka sér hlé frá handboltanum og verður því ekki með HK á komandi tímabili í Olís-deild karla. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag. Styrmir er uppalinn HK-ingur og hefur verið hluti af meistaraflokki félagsins undanfarin ár. Hann hefur þegar náð þeim merka áfanga að leika yfir 100 leiki fyrir HK. ,,Við hjá HK þökkum Styrmi kærlega fyrir hans framlag til félagsins og virðum ákvörðun hans um að stíga til hliðar frá handboltanum um sinn. Við óskum Styrmi alls hins besta og vonum að sjálfsögðu að við sjáum hann aftur á handboltavellinum þegar fram líða stundir," segir í tilkynningunni frá HK. Komnir: Farnir:
Andrew Wisman frá Nordsjælland (Danmörk)
Tómas Bragi Starrason frá Gróttu
Trúgvi Hávardsson frá StíF (Færeyjar)
Alex Máni Oddnýjarson frá Fjölni
Sigurður Jefferson í Hauka
Hjörtur Ingi Halldórsson í Hauka
Ágúst Guðmundsson í FH
Haukur Ingi Hauksson í Fram
Styrmir Máni Arnarsson - Í pásu

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.