Fyrsta umferð þýska bikarsins í handbolta hófst í gær og boðið var upp á nokkur óvænt úrslit. Stærstu tíðindin voru þau að SC DHfK Leipzig féll úr leik gegn 2. deildarliði TuSEM Essen eftir æsispennandi leik sem þurfti tvær framlengingar til að fá sigurvegara. Essen vann að lokum 36–33, eftir að staðan hafði verið 26–26 eftir venjulegan leiktíma og 31–31 eftir fyrri framlenginguna. Blær Hinriksson kom við sögu hjá Leipzig og skoraði eitt mark úr fjórum skotum. Leipzig er því úr leik strax í fyrstu umferð eftir að hafa fallið úr þýsku úrvalsdeildinni síðasta vor. TSV Hannover-Burgdorf vann TuS Ferndorf 36–29, en Sigvaldi Björn Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Hannover í leiknum. HC Erlangen vann HSG Hanau 37–26 og tryggði sér sæti í 2. umferð. Hvorki Andri Már Rúnarsson né Viggó Kristjánsson voru hins vegar í leikmannahópi Erlangen. Þá vann TV Emsdetten óvæntan sigur á TuS N-Lübbecke, 29–25, og 1. VfL Potsdam slapp með nauman sigur gegn TuS Vinnhorst, 33–32. Fyrsta umferð bikarsins lýkur á morgun þegar fleiri af stærstu liðum Þýskalands koma til leiks.Úrslit föstudagsins:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.