ÍBV mætti ÍR á Ragnarsmótinu í fyrr í dag. Eyjamenn komu mjög sterkir til leiks gegn ÍR og náðu strax góðri forystu í fyrri hálfleik og leiddu örugglega með 11 mörkum þegar liðin gegnu til búningsherbergja, 22-11. ÍBV slógu ekkert af bensíngjöfinni í síðari hálfleik og keyrðu gjörsamlega yfir Breiðhyltinga og unnu leikinn að lokum með 20 marka mun, 45-25. Allir útileikmenn ÍBV skoruðu mark í dag og voru Jason Stefánsson og Kristófer Ísak Bárðarson 7 mörk hvor. Ungur og bráðefnilegur leikmaður ÍR, Bjartur Fritz Bjarnason, var markahæstur hjá ÍR með 6 mörk en næstur kom Nökkvi Blær Hafþórsson með 5 mörk. Petar Jokanovic varði 13 skot í dag og Gabríel Ari Davíðsson varði 5 skot fyrir Eyjamenn en í markinu hjá ÍR stóðu Gísli Hrafn Valsson sem varði 4 skot og Andri Snær Sigmarsson kom næstur með 3 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.