Haukar og FH mættust í lokaleik Hafnarfjarðarmótsins fyrr í dag. Haukar byrjuðu leikinn mun betur og náðu strax góðu forskoti í fyrri hálfleik en Grétar Ari var í miklum ham fyrir aftan Haukavörnina í markinu. Staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja var 19-11 Haukum í vil. Haukamenn slógu ekkert af í síðari hálfleik og unnu að lokum öruggan 12 marka sigur, 34-22, á nágrönnum sínum í FH og urðu með sigrinum sigurvegarar Hafnarfjarðarmótsins en liðið endaði með fjögur stig líkt og Afturelding og FH en voru með betri innbyrgðis úrslit. Andri Fannar Elísson, Ólafur Ægir Ólafsson og Freyr Aronsson voru markahæstir í liði Hauka með 6 mörk í dag en hjá FH var Ómar Darri Sigurgeirsson atkvæðamestur með 5 mörk og næstur kom Ágúst Guðmundsson með 4 mörk. Grétar Ari Guðjónsson var frábær í leik dagsins og varði 15 skot í marki Hauka og var valinn maður mótsins að leik loknum. Jón Þórarinn Þorsteinsson varði 8 skot í marki FH. Fyrrum um daginn mættust Afturelding og HK en leiknum lauk með 31-27 sigri Mosfellinga. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Afturelding leiddi með tveim mörkum í hálfleik, 17-15. Afturelding byrjaði síðari hálfleik af miklum krafti og náðu strax fimm marka forskoti og létu það aldrei af hendi allt til leiksloka og unnu að lokum fjögurra marka sigur eins og fyrr segir, 31-27. Oscar Lykke var markahæstur í liði Mosfellinga í dag með 7 mörk en næstur kom Árni Bragi Eyjólfsson með 5 mörk. Hjá HK var Trúgvi Hávardsson markahæstur með 6 mörk en næstur kom Andri Þór Helgason með 4 mörk. Sigurjón Bragi Atlason varði 10 skot í marki Aftureldingar og Bergvin Snær Alexandersson varði 4 skot. Hjá HK varði Brynjar Vignir Sigurjónsson 4 skot og Patrekur Guðni Þorbergsson 3 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.