
Hinrik Hugi Heiðarsson, línumaður ÍBV, ætlar að draga úr handboltaálaginu á komandi tímabili en stefnir jafnframt á að leika með HBH, venslafélagi ÍBV. Hinrik Hugi hefur ákveðið að minnka við sig í handboltanum. Hann segir breyttar aðstæður í lífi sínu hafa ráðið miklu um ákvörðunina. „Staðan var þannig að ég var orðinn leiður á skuldbindingunni sem fylgir þessu. Ég var að byrja í nýrri vinnu og er mjög spenntur fyrir henni,“ sagði Hinrik Hugi í samtali við Handkastið. Hann útilokar þó ekki að halda áfram að spila með ÍBV. „Ég myndi ekki segja að ég væri hættur en forsendur mínar hjá ÍBV hafa breyst og ég mun mæta á æfingar þegar ég kemst og hjálpa liðinu ef þess er óskað.“ Hinrik Hugi stefnir jafnframt á að spila með HBH á komandi tímabili, en félagið lék í Grill 66-deildinni á síðustu leiktíð en féll niður í 2.deildina. Hann hefur verið hluti af HBH undanfarin ár og var meðal annars valinn „Mjaldurinn“ hjá félaginu á lokahófi síðasta vor. „Þá stefni ég á að spila með HBH á komandi tímabili, þannig maður er ekki alveg hættur en ég hef ákveðið að minnka aðeins álagið.“ Hinrik Hugi, sem er 21 árs, er uppalinn hjá ÍBV og hefur einnig leikið með Haukum. Hann var lánaður til Hauka á síðari hluta tímabilsins 2024/25. Hann hefur einnig átt farsælan feril með yngri landsliðum Íslands og var í íslenska U21 árs landsliðinu sem tók þátt í heimsmeistaramótinu árið 2025.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.